29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Skúli Guðmundsson:

Ég sé enga ástæðu til þess að vísa málinu aftur til fjvn., þar sem gefið er í skyn í nál., að n. eigi eftir að gera brtt. til viðbótar þeim, sem hún hefur gert, og þar sem augljóst er, að n. getur komið með brtt., hvenær sem henni þóknast, meðan ekki er lokið afgreiðslu fjárl., án þess að málinu sé vísað til hennar nú. Segi ég því nei.