29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í B-deild Alþingistíðinda. (478)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Gísli Guðmundsson:

Þar sem það er komið í ljós, að nokkur ágreiningur hefur verið innan fjvn. um þessa afgreiðslu á málinu, sem liggur fyrir, að höfð verði, þá tel ég ekki óeðlilegt, að málinu verði nú frestað um stund. En með því að málinu hefur nú þegar verið vísað til fjvn. og hún hefur það enn til meðferðar, tel ég ekki rétt að vísa því til n. með annarri atkvgr., og segi ég því nei.