29.01.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (484)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Einar Olgeirsson:

Ég vil aðeins bera þau tilmæli fram við hæstv. forseta, að hann fresti þessari 2. umr., og ef forseti ekki álítur, að hann geti það upp á eigin spýtur eða vill ekki bera ábyrgð á því, að hann beri það undir þm., hvort þeir vilji fresta þessari 2. umr. um ótiltekinn tíma.