03.02.1943
Sameinað þing: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í B-deild Alþingistíðinda. (551)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1943
Emil Jónsson:
Ég tek undir það, að mér finnst rétt, að Alþ. kjósi menn til þess að hafa úthlutun þessa á hendi. Hafi menntamálaráði mistekist þetta, er réttast að kjósa aðra menn í þeirra stað, og segi ég því nei.