15.02.1943
Sameinað þing: 26. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (634)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1943

Jörundur Brynjólfsson:

Þessar till. á þskj. 419,XXV og XXVI eru að vísu fluttar sem brtt. við brtt. stjórnarinnar, og sá háttur hefur gilt hér í hæstv. Alþ. til þessa, eftir því sem ég bezt veit, fram að þessu kvöldi, að bera slíkar brtt. upp fyrst sem þessar undir rómv. XXV og XXVL Og ég tel hyggilegra, að hér sé ekki gerður leikur að því að víkja frá algildri reglu og réttri reglu. Þess vegna er rétt að bera þessar brtt. upp fyrst, því að úrslit aðaltill. eru undir því komin, hvernig um þessar brtt. fer.