15.01.1943
Neðri deild: 33. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

110. mál, ráðstafanir og tekjuöflun vegna dýrtíða og erfiðleika atvinnuveganna

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. — Ég kvaddi mér ekki hljóðs út af þessari framlengingu, heldur vil ég spyrja, hvort ríkisstj. gæti ekki nú eða bráðlega gefið þær upplýsingar í sambandi við þessi dýrtíðarmál yfirleitt, sem ég fór fram á hér á dögunum. Ég ætla ekki að endurtaka hér, hvað það var, sem ég vildi gjarnan fá upplýsingar um; ég gerði það þá, og hæstv. ríkisstj. hefur það vafalaust hjá sér.