20.11.1942
Sameinað þing: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (66)

Kosning fastanefnda

Jónas Jónsson:

Út af þessari aths. vil ég segja, að við, sem höfum átt sæti á Alþ. eins lengi og bæði ég og hæstv. forsrh., höfum séð annað eins og að kosningu einnar n. væri frestað um einn dag. Mér þykja þetta því ómakleg orð, sem hæstv. ráðh. mælir til okkar framsóknarmanna.