28.01.1943
Neðri deild: 44. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

124. mál, taka ljósmynda og meðferð ljósmyndavéla

Dómsmrh. (Einar Arnórsson):

Herra forseti:

Eins og kunnugt er, eru hér ekki í l. nein bönn eða refsiákvæði við því að taka ljósmyndir neins staðar. En hagir okkar hafa breytzt svo í þessu stríði, að óskir hafa komið fram um löggjöf í því átt. Samkv. því hefur frv. verið samið, og ætla ég, að ákvæði þess séu nokkuð í samræmi við þær óskir. Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta, en vænti þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.