19.11.1942
Efri deild: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
Sætaskipun
Atvmrh. (Magnús Jónsson):
Ég vildi leyfa mér að stinga upp á því, að þessi hv. d. fylgdi nokkuð gamalli venju um að leita afbrigða frá þingsköpum um að fella niður hlutun um þingsæti í d. og við hv. þm. séu í þeim sömu sætum á þessu þingi, er þeir hafa setið í áður. Bið ég hæstv. forseta að bera upp þá till.
Afbrigði um till. leyfð og till. sjálf samþ. með 15 shlj. atkv.
En þm. höfðu tekið sér sæti sem hér segir:
5. sæti Hermann Jónasson,
6. — Jónas Jónsson,
7. — Ingvar Pálmason,
8. — Bernharð Stefánsson,
9. — Haraldur Guðmundsson,
10. — Guðmundur Í. Guðmundsson,
11. — Brynjólfur Bjarnason,
12. — Kristinn Andrésson,
13. — Þorsteinn Þorsteinsson,
14. — Gísli Jónsson,
15. — Bjarni Benediktsson,
16. — Lárus Jóhannesson,
17. — Pétur Magnússon.