11.03.1943
Efri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

116. mál, húsaleiga

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég vildi aðeins beina þeirri fyrirspurn til hv. 1. þm. S.-M., hvort hann vildi ekki taka aftur til 3. umr. 3. brtt. sína við 15. gr. frv.

Það er alls ekki sæmandi fyrir deildina að láta þessa gr. fara frá sér eins og hún er nú og ekki heldur eins og þessi hv. þm. hefur lagt til, að hún yrði. Þetta þarf því að taka betur til athugunar fyrir 3. umr., og óska ég þess því, að hv. þm. vildi taka aftur þessa brtt. sína, ef við gætum komið okkur betur niður á, hvernig bezt mundi að hafa þetta.