23.11.1942
Efri deild: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

Kosning fastanefnda

Pétur Magnússon:

Eins og forseti tók fram, hefur verið venja deildarinnar, að fastanefndir væru skipaðar 3 mönnum. En þar sem Ed. er nú skipuð 17 mönnum, þykir ekki ástæða til þess, og vænti ég, að hv. d. fallist á, að þær 3 n., sem mest mæðir á, fjhn., landbn. og allshn., skuli skipaðar 5 mönnum hver, og geri það að till. minni.