12.04.1943
Neðri deild: 98. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

176. mál, samflot íslenzkra skipa

Forseti (JJós):

Það hefur enginn kvatt sér hljóðs, og er umr. lokið. — Ég skal taka það fram út af brtt. á þskj. 731, þar sem lagt er til að færa fyrirsögn frv. til betra máls með breyt. á einu orði, að ég lít svo á, að samþykkt þeirrar brtt. hafi það ekki í för með sér, að frv. þurfi að endursenda Ed. vegna hennar. Ef ekki koma fram aðrar brtt. og ná samþykki, mun frv. geta fengið afgreiðslu sem lög við næstu umr. í hv. d. Verður nú gengið til atkv.