04.01.1943
Sameinað þing: 12. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

Stjórnarskipti

forseti (HG):

Forseta hefur borizt svohljóðandi bréf frá hæstv. forsrh.:

„Hinn 22. desember var tryggingayfirlæknir Jóhann Sæmundsson samkv. tillögu minni skipaður ráðherra í ráðuneyti Íslands, og fer hann með félagsmál.

Þetta er yður, herra forseti, tilkynnt hér með til birtingar fyrir Alþingi.

Björn Þórðarson.

Til forseta sameinaðs Alþingis, Reykjavík.“