09.12.1942
Efri deild: 11. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Forseti (StgrA):

Ég vil taka fram, að þar sem forseta var algerlega ókunnugt um, að þessar fyrirspurnir kæmu fram, var ekki hægt að gera neinar ráðstafanir til, að hæstv. dómsmrh. væri viðstaddur, þegar fyrirspurnirnar kæmu fram. Ég vil taka undir það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að réttast væri að koma formlega fram með þessar fyrirspurnir, en ekki koma aðeins með þær utan dagskrár.