10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Sigfús Sigurhjartarson:

Þar sem ég get ekki betur séð en þetta raski gersamlega því samkomulagi, sem hefur orðið innan fjhn., þar sem Alþýðusamband Íslands er hér ekki tekið með sem samkomulagsaðili, segi ég nei.