12.04.1943
Efri deild: 97. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (996)
140. mál, dýrtíðarráðstafanir
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti — Frv. ríkisstj. um dýrtíðarráðstafanir er nú komið hingað til Ed. eftir miklar umr. í Nd., og eins og sjá má, hefur það tekið þar miklum stakkaskiptum, en nú kemur til kasta Ed. að leggja síðustu hönd á þetta mál. Hún hefur mjög stuttan tíma til umráða, þar sem gera má ráð fyrir, að morgundagurinn verði síðasti dagurinn, sem fundir verða haldnir í deildum. Ég ætla ekki að ræða þetta mál nú, en ríkisstj. mun gera grein fyrir afstöðu sinni við 2. eða 3. umr.