08.11.1943
Neðri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)

96. mál, eyðing svartbaks

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :

Herra forseti. Nefndin hefur athugað frv. og orðið ásátt um, að það yrði samþykkt. En frv. er aðeins um að framlengja lögin eins og þau eru, en þau myndu annars falla úr gildi í árslok. Það hefur komið í ljós, að þau hafa gert allmikið gagn, og telja má víst, að svo verði, ef þau verða í gildi áfram.