08.11.1943
Efri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)

99. mál, lax- og silungsveiði

Gísli Jónsson:

Í tilefni af þessu vil ég taka fram, að verði þessu máli vísað til landbn., þá óska ég eftir, að sú hv. n. vildi ræða það við sjútvn., áður en hún afgr. það. Á hinn bóginn vil ég svo lýsa yfir því, að fái sjútvn. málið til meðferðar, þá mun hún ræða það við landbn.