21.10.1943
Efri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)

107. mál, brunatryggingar í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Ég skal ekki lengja umr., en ég vildi aðeins spyrja hv. 1. flm., hvort fyrir liggi upplýsingar um, hvað mikilli upphæð sú hækkun á iðgjöldum, sem þessi breyt. fer fram á, nemi.

Húsaleigul. takmarka mjög tekjur manna af húsum, eins og kunnugt er, og þætti mér vænt um, ef hv. allshn. gæti gefið upplýsingar um verkun þeirrar iðgjaldahækkunar, sem frv. þetta fer fram á.