16.04.1943
Efri deild: 2. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Kosning fastanefnda

Forseti (StgrA):

Á síðasta Alþ. voru fjhn., landbn. og allshn. skipaðar 5 mönnum hver, en 3 menn voru í hinum nefndunum. Ef ekki er nein uppástunga að breyta þessu, þá mun svo verða á þessu þingi.

Skv. breyt. á þingsköpum skal nú kosið í heilbrigðis- og félagsmálanefnd. Ósk hefur komið fram um, að í henni verði 5 menn, og mun ég bera undir atkv. hv. þdm., hvort svo skuli vera.