25.11.1943
Sameinað þing: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (120)
27. mál, fjárlög 1944
Forseti (GSv):
Þá hefur hv. 2. þm. Rang. (IngJ) lokið máli sínu. Hann talaði af hálfu Sjálfstfl. og notaði 4 mínútur fram yfir tíma flokksins að þessu sinni.
Þá hefur hæstv. ríkisstjórn tilkynnt, að hún óskaði ekki að þessu sinni að notfæra sér sinn afskammtaða tíma.
Hefst þá 2. umferð, sem er ákvörðuð 15 mínútur fyrir hvern aðila. Tekur þá fyrstur til máls hv. þm. V.-Hún., Skúli Guðmundsson, og talar af hálfu Framsfl. um 15 mínútur, því að metin verða jöfnuð í síðustu umferð, miðað við það, hvaða tíma flokkar hafa notað fram yfir tiltekinn tíma fyrir hverja umferð.