08.11.1943
Efri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (1204)
126. mál, lóðir og lönd Reykjavíkurkaupstaðar
Frsm. (Bjarni Benediktsson) :
Allshn. hefur athugað þetta frv. og er sammála um að mæla með að það verði samþ. Frv. fylgir allýtarleg grg., og auk þess gerði ég grein fyrir því við 1. umr. málsins. Þar sem n. hefur einhuga fallizt á frv., sé ég ekki ástæðu til að segja meira um það, en mælist aðeins til, að það verði afgr. óbreytt.