08.11.1943
Efri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í B-deild Alþingistíðinda. (1227)
132. mál, fyrning skulda og annarra kröfuréttinda
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Eins og sjá má af nál. allshn. á þskj. 319, hefur n. athugað frv. nokkuð og leggur til einróma, að það verði samþ. Að vísu ná geta þess, að einn nm. var ekki viðstaddur, og er mér ókunnugt um afstöðu hans, en ef hann hefur sérstöðu til málsins, þá gerir hann sjálfsagt grein fyrir henni.
Það var gerð grein fyrir frv. þessu við 1. umr., og hef ég litlu við það að bæta, sem þá var sagt. Þetta frv. er um það, að þeir, sem staddir voru í Danmörku, Finnlandi eða Noregi eða öðrum Evrópulöndum, sem líkt er ástatt um, hinn 10. apríl 1940, missi ekki rétt sinn hér á landi, ef þeir þá hafa átt fjárkröfur á menn hér, — vegna fyrningar á skuldunum.
N. leit svo á, að eins og ástatt er á meginlandinu, þá sé í alla staði sjálfsagt að geyma þessum mönnum þennan rétt, sem þeir kynnu að eiga, og geyma hann til stríðsloka. Ég hef svo ekki fleira fram að taka.