08.11.1943
Neðri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)

81. mál, málflytjendur

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Allshn. hefur haft þetta mál til athugunar og sent hæstarétti það til umsagnar, og mælir hann með, að það verði samþykkt. Nefndin er og öll sammála um, að breytingar þær, er frv. fer fram á, verði gerðar, og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.