17.11.1943
Efri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

145. mál, heilsuhæli fyrir drykkjumenn

Eiríkur Einarsson:

Út af ummælum 1. þm. Reykv. að þetta hæli ætti að vera úr þjóðbraut, þá virðist mér það styðja till. mína um að flytja sakamannahælið frá Litla-Hrauni, því að ef það er ekki heppilegt að hafa drykkjumenn í alfaraleið, þá mun það ekki fremur heppilegt með sakamenn.