23.11.1943
Efri deild: 54. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

163. mál, útsvarsinnheimta 1944

Frsm. (Bjarni Benediktsson) :

Allshn. hefur fengið mál þetta til meðferðar, og a. m. k. meiri hl. hennar leggur til. að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Það hefur verið svo mikið um málið rætt, bæði í fyrra og við 1. umr. nú. að ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það frekar, en aðeins skýra frá því, að n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt til 3. umr.