06.12.1943
Efri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

101. mál, lendingarbætur í Grindavík

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft mál þetta til athugunar og borið það saman við gildandi lög um lendingarbætur. Leggur nefndin til, að gerðar verði á því nokkrar breyt. til samræmingar við þau, og eru þær brtt. á þskj. 547.

Vænti ég þess, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem n. leggur til að gerðar verði á því.