03.12.1943
Neðri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)

178. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það er eins með þetta frv. og 177. mál, sem samþ. var næst á undan að vísa til 2. umr., að það er flutt af fjhn. eftir tilmælum ríkisstj. Hér er einungis að ræða um framlenging gildandi ákvæða, sem ég hygg menn sammála um, að framlengja þurfi.