09.12.1943
Neðri deild: 60. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)
178. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur athugað frv. þetta og ber fram tvær leiðréttingar við það. Sú fyrri er við 1. gr., að í stað „1. janúar 1943 til ársloka 1944“ komi: 1. janúar 1944 til ársloka 1945, — og við 2. gr., að í stað „1943 og 1944“ í 3. málsgr. komi: 1945 og 1946. — Eru þetta hvort tveggja leiðréttingar, eins og áður er sagt.