11.11.1943
Efri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)

152. mál, alþýðutryggingar

Lárus Jóhannesson:

Út af ræðu hv. þm. Barð. vil ég segja, að þótt þetta frv. komi frá heilbr.- og félmn., hefur n. ekki fengið tækifæri til að taka það til fullkominnar meðferðar. Ég sem einn flm. tel því sjálfsagt að vísa því til n. til formlegrar meðferðar í einstökum atriðum.