16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)

152. mál, alþýðutryggingar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Þótt verða mætti, að till. hv. þm. Snæf. yrði samþ., verð ég að leggja á móti henni, því að með henni er málinu teflt á tæpasta vaðið, þar sem alveg er komið að þinglausnum. — Enda þótt telja megi brtt. þessari nokkuð til gildis, er ekki ástæða til að hætta málinu hennar vegna.