24.09.1943
Efri deild: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. Út af fyrirspurnum hv. þm. Barð. vil ég taka það fram, að það er rétt, að það hefur um skeið orðið nokkur dráttur á því að fá greiðslu fyrir fiskafurðir, sem seldar eru úr landi til láns- og leigulagastofnunarinnar í Bandaríkjunum. Þegar ég varð var við þennan drátt fyrir hálfum mánuði, sneri ég mér til þeirra aðila, sem þarna eiga hlut að máli, og kvartaði yfir þessu og óskaði eftir, að úr þessu yrði bætt strax. Mér er ánægja að upplýsa hv. d. um það, að það er þegar úr þessu bætt, þannig að fyrsta greiðslan er afgr. frá láns- og leigulagastofnuninni í Washington til Íslands fyrir nokkrum dögum. Upphæðin, sem þarna er um að ræða, er nokkuð á aðra milljón dollara, og það hafa verið gefin fyrirheit um, að þetta muni ekki koma fyrir aftur. Þessi dráttur mun hafa stafað af því, að það þurfti að taka upp nýtt fyrirkomulag við greiðslurnar frá 1. júlí. Frá þeim tíma var sá háttur tekinn upp að greiða 2/3 af andvirði fiskjarins í dollurum, en 1/3 í sterlingspundum. En eins og ég sagði áðan, þá er verulegur hluti þessara upphæða kominn í hreyfingu, og hitt mun koma bráðlega á eftir.