06.12.1943
Neðri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. þm. N.-Ísf. og af því að sá hæstv. ráðh. er ekki viðstaddur, sem þetta mál heyrir undir, vil ég taka fram, að ég skal fúslega taka að mér að flytja honum efni þeirrar fyrirspurnar, sem hv. þm. hefur lagt hér fram.