15.12.1943
Neðri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (1828)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Þar sem enginn ráðherra er hér viðstaddur nema ég, vil ég svara þessu. Ég er sammála 8. þm. Reykv. um það, sem hann sagði viðvíkjandi fyrirspurnum til ríkisstj. Virðist mér nauðsynlegt, að ákveðið verði, hvernig og hvenær þær séu fram bornar og hvenær þeim sé svarað, en þingsköpin eru losaraleg um þessi atriði. En viðvíkjandi aðalfyrirspurn þm., þá skal ég koma henni áleiðis til þess ráðherra, sem um þessi mál fjallar.