21.04.1943
Efri deild: 8. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (StgrA):

Út af þessari fyrirspurn skal ég upplýsa, að skrifstofustjóri hefur tjáð mér, að nokkrum hluta af handriti þessarar bókar, sem hv. þm. kallar svo, hafði verið skilað til skrifstofunnar 13. apríl, og var það þá skráð sem þskj. og gefið númer. Hins vegar varð dráttur á, að framhald handritsins kæmi, svo að vegna þessa er ekki ástæða til að gera ráðstafanir út af prentun þskj. almennt. Skjal þetta verður að telja þskj. og geyma í skjalasafni þingsins.