28.10.1943
Neðri deild: 39. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (1861)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Garðar Þorsteinsson:

Út af þessari fyrirspurn til allshn. vil ég upplýsa, að hún sendi þetta mál til skattstjóra og óskaði álits hans og niðurjöfnunarnefndar á því. Þaðan kom það fyrir fáum dögum, og var álit niðurjöfnunarnefndar neikvætt. Síðan hafa verið haldnir tveir fundir, en afgreiðslu þess ekki lokið, af því að n. átti von á frv. um skylt efni. Vænti ég, að þessu verði lokið á næsta fundi n., sem er ákveðinn á þriðjudag.