24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (JörB):

Ég hef enga tilhneigingu til þess að hindra, að málið komi til afgreiðslu, en mér hafa borizt tilmæli um það, að málið yrði ekki að svo stöddu tekið á dagskrá, og ég mun þess vegna ekki gera það án þess að leita eftir því, hvort þeir menn eru tilbúnir, sem báru þær óskir fram.