10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Eitt af fyrstu málunum, sem lögð hafa verið fyrir þetta þing, er nú 5. mál á dagskrá og er til 2. umr. (eignaraukaskattur). Ég tel ekki vansalaust, ef það verður ekki afgreitt nú á þessu þingi. Þar sem það er venja, að þau frv., sem fyrst koma fram, verði látin ganga á undan, vil ég eindregið mælast til þess, að það verði tekið fyrir, enda þótt ég sé hæstv. ráðh. sammála um það, að 6. mál á dagskránni þurfi einnig að vera meðal þeirra mála, sem eiga að vera í fyrstu röð.