11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Áki Jakobsson:

Ég vil taka undir mál hv. 3. þm. Reykv. Þetta mál er vel undirbúið og komið frá Ed., og má búast við, að miklar umræður verði um það. Í öðru lagi óska ég, að 7. dagskrárliður verði færður fram. Það hefur dregizt nú um þrjár vikur, að það mál væri tekið fyrir.

Loks vil ég benda á mál, sem ég flyt og er 6. dagskrármál. Tel ég mig eiga heimtingu á, að það komi á undan 4. dagskrárlið, sem var til umr. í gær.