17.12.1943
Efri deild: 69. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)

Starfslok deilda

forseti (StgrA):

Þá er lokið störfum deildarinnar, og verður þetta síðasti fundur hennar að þessu sinni. Ég mun ásamt skrifara ganga frá fundargerð þessa fundar, eins og venja er til, og skoða það samþ. án atkvgr., ef enginn mælir því í gegn.

Ég þakka hv. deildarmönnum góða samvinnu og prýðilega framkomu í minn garð. Óska ég þeim öllum gleðilegra jóla og nýárs, en þeim sérstaklega, er heima eiga utanbæjar, fararheilla og góðrar heimkomu.