16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)

Starfslok deilda

Forseti (JörB) :

Ég þakka hv. þm. G.-K. hans einkar hlýlegu orð og góðar óskir í minn garð og hv. þdm. þá virðingu, er þeir hafa látið mér falla í skaut.

Ég endurtek svo árnaðaróskir mínar til hv. þm. G.-K. og hv. þingdeildarmanna.

Segi ég svo þessum fundi slitið.