17.12.1943
Sameinað þing: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

Þinglausnir

forseti (GSv):

Þá er verkefni þessa fundar lokið, en ég vil geta þess, að í dag fara fram þinglausnir, kl. 1,30, og verður þeim útvarpað. Við þinglausnir verða engin venjuleg þingstörf. Ríkisstjóri slítur þinginu. Þetta mun því verða síðasti fundur í sameinuðu þingi, og vil ég nota tækifærið til að þakka hv. þingmönnum gott samstarf, sem yfirleitt hefur verið svo, þótt stundum hafi horft erfiðlega.

Ég óska þingmönnum öllum gleðilegra jóla og góðs nýárs og þeim, sem eru fjarri heimilum sínum, fararheilla og góðrar heimkomu.