17.12.1943
Sameinað þing: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (2001)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég veit, að ég tala fyrir munn allra þingmanna, er ég þakka hæstv. forseta gott samstarf á þessu þingi. Og ég vænti sömuleiðis, að ég mæli fyrir munn allra, er ég óska honum gleðilegra jóla og nýárs svo og góðrar heimferðar. Vil ég biðja þingmenn að rísa úr sætum sínum og hrópa fyrir honum ferfalt húrra.