06.09.1943
Neðri deild: 7. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (2044)

7. mál, minkaeldi o.fl.

Flm. (Pétur Ottesen) :

Ég get vísað til þeirrar grg., sem fylgir þessu frv., jafnframt því, sem ég skírskota til þess, sem fram hefur komið um þetta mál, síðan það var fyrst borið fram á Alþingi. Mér þykir ekki ástæða til að hefja neinar umræður um þetta á þessu stigi, en vil aðeins gera að minni till., að málinu verði að lokinni umr. vísað til landbn.