21.10.1943
Efri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (2066)

44. mál, verðlag

Forseti (StgrA) :

Eins og vitað er, er viðskiptaráð framkvæmdaraðilinn í þessu máli, að vísu má þó segja, undir yfirstjórn ráðh., en þó fara framkvæmdir þessara mála yfirleitt eftir reglum þeim, sem settar hafa verið með l., sem Alþ. hefur samþ. Mér finnst því óþarfi fyrir flm. að ávæna mig um óheilindi í þessum málum.