10.09.1943
Efri deild: 15. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (2083)

22. mál, friðun Patreksfjarðar fyrir skotum

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta frv. Það er komið fram fyrir tilmæli fjöldamargra íbúa í Rauðasands- og Patreksfjarðarhreppi, og vísa ég til grg. og fylgiskjals, sem er með málinu.

Ég vona, að þessu máli verði hraðað, og óska, að málinu verði vísað til hv. allshn. að lokinni þessari umr.