21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (2107)
11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis
Hermann Jónasson:
Ég vil gjarnan óska eftir úrskurði forseta um það, hvort gerlegt er að bera upp þessa till. Ég sé ekki, að það sé hægt, því að hún á að vera takmörkun á því valdi, sem ríkisstjóra og ríkisstj. er fengið í hendur, og þá sé ég ekki, hvernig hún fær staðizt, en ef hún er það ekki, þá er hún þýðingarlaus. Ég óska því eftir, að hæstv. forseti úrskurði, hvort hún geti komið til atkvæða.