03.12.1943
Neðri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í C-deild Alþingistíðinda. (2145)

110. mál, jarðræktarlög

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Ég hef frá upphafi talið, að 17. gr. væri miður heppileg, og fylgi því hiklaust minni hl. landbn. að málum. Þar með mun ég stuðla að því, að frv. á þskj. 197 verði samþ.

Hins vegar verð ég að geta þess, að ég hef ekki getað fallizt á, að þessi gr. sé eins hættuleg og andstæðingar vilja vera láta, en mun nota atkv. mitt til þess að fá gr. afnumda úr l.