21.04.1943
Neðri deild: 4. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í B-deild Alþingistíðinda. (218)
2. mál, aðflutningsgjald af nokkrum vörutegundum
Fjmrh. (Björn Ólafsson) :
Þetta frv. er flutt vegna viðskiptasamnings við Bandaríkin. Það er flutt í samráði við flokkana og utanrmn. En lagaheimild þarf til að staðfesta þessar tollaívilnanir, sem hér um ræðir.