07.09.1943
Efri deild: 13. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í C-deild Alþingistíðinda. (2276)

16. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Þetta er staðfesting á bráðabirgðal., sem út voru gefin um heimild til að breyta tímaákvörðun og frestum, sem um ræðir í 4. kafla l. nr. 6 frá 1935, um tekju- og eignarskatt.

Ég sé ekki sérstaka þörf að láta fylgja þessu frekari skýringu, því að frv. skýrir sig í raun og veru sjálft.